Uppfylla þarf einhver af eftirtöldum skilyrðum:
- Vera flokksbundinn í Sjálfstæðisflokknum
- Vera flokksbundinn í Samfylkingunni
- Vera sonur Davíðs Oddssonar fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi seðlabankastjóra
- Vera vinur eða skyldmenni Davíðs Oddssonar fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi seðlabankastjóra
- Hafa verið aðstoðarmaður Björns Bjarnasonar, vinar Davíðs Oddssonar fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi seðlabankastjóra
- Hafa gegnt veigamiklum nefndarstörfum varamanns í nefndum fyrir Sjálfstæðisflokkinn
- Sitja í dómnefnd Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar
- Hafa víðtæka reynslu af félagstörfum innan Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar eða Alþýðuflokki, Alþýðubandalagi eða Kvennalista (flokkanna sem mynduðu Samfylkinguna)
- Vera vinur Össurar Skarphéðinssonar, núverandi iðnaðarráðherra og þess sem réði nýjan Orkumálastjóra
- Vera vinur aðstoðarmanns Össurar Skarphéðinssonar, núverandi iðnaðarráðherra og þess sem réði nýjan Orkumálastjóra
- Vera gamall vopnabróðir úr Alþýðubandalaginu
- Vera fyrrverandi formaður Alþýðubandalags Reykjavíkur, samtíða Össuri Skarphéðinssyni, núverandi iðnaðarráðherra og þeim hinum sama sem réði nýjan Orkumálastjóra, í þeim mæta félagsskap
- Vera fyrrverandi stjórnarmaður í útgáfufélagi Þjóðviljans, á sama tíma og Össur Skarphéðinsson, núverandi iðnaðarráðherra og sá sem réði nýjan Orkumálastjóra, var ritstjóri blaðsins
- Vera fyrrverandi oddviti Röskvu, í hópi með lítt pólitíska fólkinu Þórunni Sveinbjarnardóttur núverandi umhverfisráðherra, Steinunni Valdísi Óskarsdóttur alþingismanni Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra og Skúla Helgasyni framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar
- Vera fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins og talsmaður Samfylkingarinnar, með kjörmenntun í starf forstöðumanns Litla Hrauns
- Mæta ýmsum hæfniskröfum sem gerðar eru eftirá af ráðherrum Samfylkingar eða Sjálfstæðisflokks og sem ekki er krafist í opinberum auglýsingum um viðkomandi starf
No comments:
Post a Comment